Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

13. janúar 2012

Safninu afhent gjöf

Vel gefin safninu.13.01.2012

Föstudaginn 13. janúar afhendu systkinin Margrét, Gunnar, Lárus, Ágúst og Guðrún Jónsbörn safninu bátavél að gjöf í minningu um foreldra sína þau Jón Lárusson (1908-1983) og Mörtu Hannesdóttur (1913 – 2011). Bátavélin er af gerðinni FARE-GÖTA 12 BR (framleidd í vélaverksmiðju AB Götamotorer, Gautaborg, Svíþjóð), og kom til Reykjavíkur árið 1955. 

Vel gefin safninu13.01.2012

Ekki er vitað um notkun vélarinnar en hún fannst í fremur slæmu ástandi í kjallara verlsunarhúsnæðis við Laugarveg 81 árið 1980.  Gerði Jón þá vélina upp og til þess að geta lokið því verki heimsótti hann ,ásamt syni sínum Ágústi, verksmiðjuna þar sem vélin var smíðuð og útvegaði sér varahluti.   Safnið þakkar þeim systkinum kærlega fyrir og stefnt er að því að vélin verði sett á sýningu safnsins með vorinu. 

Vel gefin safninu13.01.2012-hjonin

Jón Lárusson og Marta Hannesdóttir


Senda á Facebook

Viđburđatal