Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

15. febrúar 2012

Frćđslukvöld Íslenska Vitafélagsins

Vitafelagid-viti

Spegill fortíðar silfur framtíðar

Þorrin, lýsið og matarhefðir á Íslandi.
Í auglýsingu frá Goða núna á Þorranum var því haldið fram skýrum stöfum að þorramaturinn væri það sem væri "mest ekta við Ísland" og hann hafi gengið í endurnýjun lífdaga á 19. öld. Í erindi sínu mun Sólveig Ólafsdóttir leggja út af auglýsingu þessari, Þorramatnum í sögulegu ljósi og segja frá svaðilförum blaðamanna Morgunblaðisins á Þorrablóti í Naustinu á sjöunda áratug 20. aldar.

Fullyrðing Goða um þorramatinn verður síðan hrakin með gildum rökum í erindi Laufeyjar Steingrímsdóttur. Þar verður rakið hvers vegna lýsið eigi þessa nafnbót ekki síður skilið en þorramaturinn. Eins verður rifjað upp hversu oft lýsið hefur gengið í endurnýjun lífdaganna, þegar komið hafa í ljós nýir eiginleikar og margvíslegir notkunarmöguleikar lýsisins.

Sólveig Ólafsdóttir er sagnfræðingur og MA í menningarstjórnun, Hún er framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar og hefur stundar rannsóknir á matarsögu og matarmenningu Íslendinga. Rannsóknir hennar lágu til grundvallar heimildarmyndinni Iceland Food Centre - fyrsta íslenska útrásins sem var frumsýnd árið 2011.
Laufey Steingrímsdóttir er prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur stundað rannsóknir á næringu, m.a. á lýsi og D-vítamíni, og er áhugamanneskja um matarmenningu og sögu.
Staður og stund:  Víkin-sjóminjasafn, Grandagarði, Reykjavík. Miðvikudaginn 22.febrúar kl. 20:00

www.vitafelagid.com


Senda á Facebook

Viđburđatal