Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

2. febrúar 2012

Safnanótt 2012!

Logo-vikin-islenska

banner-film

Dagskrá Safnanætur 10. febrúar 2012

Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð sem haldin verður  dagana 9. – 12. febrúar 2012 frá fimmtudegi til sunnudags. Sjá nánar á www.vetrarhatid.is

19.00 - 23.00  Magnað myrkur himinhvolfsins, hvernig notuðu sægarpar fyrri tíma stjörnurnar sem leiðarvísi? -Stjörnuskoðunarfélagið og Stjörnufræðivefurinn munu fræða gesti og gangandi um stjörnufræði. Ef veður leyfir verður boðið upp á stjörnuskoðun utandyra í gegnum stjörnusjónauka. Skemmtilegt fyrir alla fjölskylduna! Sjá nánar hér.

19.00 - 23.00   Varðskipið Óðinn opnar aftur eftir vetrarlokun.  Þar munu kampakátir skipsverjar taka á móti gestum og gangandi og kannski þeir lumi á einni eða tveim draugasögum? Sjá nánar hér.

19.00 - 23.00   Dauðinn í Dumbshafi – höfundaspjall.  Magnús Þór Hafsteinsson höfundur bókarinnar Dauðinn í Dumbshafi - Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði og sjóhernaður í Norður-Íshafi 1940-1943, verður í borðsal varðskipsins Óðins. Þar mun hann ræða við gesti um efni bókarinnar, sýna einstæðar kvikmyndir af Íshafsskipalestunum sem fóru til og frá Íslandi og árita bækur ef þess er óskað. Bókin Dauðinn í Dumbshafi kom út fyrir síðustu jól. Hún seldist afar vel og hefur fengið frábæra dóma. Í henni er greint frá einstökum og æsispennandi kafla í sögu siglinga við Ísland sem lítt hefur verið sagt frá til þessa.

19.30 - 20.00   Mögnuð furðudýr og ferlegar ófreskjur. Þorvaldur Friðriksson skrímslasérfræðingur segir okkur frá sæskrímslum og kynjaskepnum sem fela sig í myrkri hafsins og hafa verið uppspretta ótal sagna í gegnum árin.  Að frásögn lokinni verður boðið upp á skrímsla-smiðju þar sem hver og einn getur útfært sitt eigið skrímsli – leyfið hugmyndafluginu að ráða! Sjá nánar hér.

20.30 - 21.00  Saga af sjónum – Magnaður leikþáttur eftir Hrafn Gunnlaugsson.  Ólafur Egill Egilsson og Vigdís Hrefna Pálsdóttir leiklesa. Björn Kristjánsson, Borko, sér um hljóðmynd. Skipsverjarnir Jón og Páll rabba um lífið og tilveruna í drungalegum lúkar úti á sjó, þá er bankað.......Sjá nánar hér.

21.30 - 22.00  Rafpopphljómsveitin Samaris spilar í Bryggjusal safnsins.   Hljómsveitin er skipuð Jófríði Ákadóttur, Þórði Kára Steinþórssyni og Áslaugu Rún Magnúsdóttur og vann Músiktilraunir 2011.  Það verður sannkallað stuð á Bryggjunni! Sjá nánar hér.

19.00 - 22.00  Ratleikur í Sjóminjasafninu!  Taktu þátt í spennandi ratleik í Sjóminjasafninu á Safnanótt! Ratleikurinn samanstendur af léttum spurningum og þrautum um sýningar safnsins. Skemmtileg og fræðandi afþreying fyrir yngsta aldurshópinn. Þeir em klára leikin fá verðlaun úr fjársjóði Sæþórs Sjóræningja! 

19.00 - 22.00  Uppákomur – Félagsmiðstöðin Frosti.  Félagsmiðstöðin Frosti (Frostaskjól) verður með uppákomur í Hornsílinu. Þar verður m.a. að finna ljósmyndasýningu, innsetningu, hljóðverk, teiknisýningu og bréfbátasýningu!  Komið og upplifið hæfileika unga fólksins! 

safnanott_logo


Senda á Facebook

Viđburđatal