Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Á döfinni

10. apríl 2012

Víkin tekur ţátt í Barnamenningarhátíđ

BARNAMENNINGARHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK

Barnamenningarhátíð verður haldin í Reykjavík dagana 17.-22. apríl 2012. Þema ársins er Uppspretta!

Markmið Barnamenningarhátíðar er að efla menningarstarf fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri með því að skapa vettvang fyrir menningu barna , með börnum og skapað af börnum. Það er von okkar að hátíðin verði skemmtileg og gefi börnum og öðrum gestum tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá sér aðkostnaðarlausu.

Víkin Sjóminjasafn býður upp á smiðju bæði laugardaginn 21. apríl og sunnudaginn 22. apríl:

 

Laugardagurinn 21. apríl

15.00 – 17.00

Bryggjubúr – lífríkið í sjónum við bryggjuna í Reykjavík – smiðja

Börnunum er sagt frá ýmsum sjávardýrum sem búa við bryggjuna í Reykjavík og í framhaldi af því búa þau til sitt eigið bryggjubúr, sem þau taka svo með sér heim.   Leitast verður eftir því að hafa fræðsluna lifandi og skemmtilega, forráðamenn taka þátt í smiðjunni með börnunum.  Hentar 4 – 8 ára börnum, en allir velkomnir. 

easycraftforkids_aquarium1

Sunnudagurinn 22. apríl

15.00 – 17.00

Bátasmiðja – smíðaðu þinn eigin bát!

Smíðum báta saman!  Sérstaklega skemmtileg smiðja þar sem að hver og einn smíðar sér bát eftir eigin höfði og hugmyndaflugi.   Allt efni verður á staðnum, en þáttakendur eru beðnir um að koma með sinn eigin hamar og merkja hann vel. Hugsað fyrir börn á aldrinum 7-12 ára.  Verið velkomin!

smíðað3


Senda á Facebook

Viđburđatal