Beint á leiðarkerfi vefsins

Víkin - Sjóminjasafn í Reykjavík

Á döfinni

28.1.2010

Varðskipið Óðinn 50 ára

Þann 27. janúar voru liðin 50 ár síðan varðskipið Óðinn kom til Íslands. Af því tilefni verður frítt fyrir alla um borð í skipið og á safnið helgina 30.-31. janúar. Fyrrverandi Óðinsmenn verða í skipinu, tilbúnir að fræða gesti um lífið um borð.

50 ara-kaka stor

Varðskipið Óðinn er hluti af Víkinni - Sjóminjasafninu og um leið ein helsta sýning safnsins. Það leynist margt í varðskipi, en Óðinn var smíðaður í Álaborg í Danmörku árið 1959, 910 tonn að stærð, 63 m á lengd og 10 m á breidd. Skipið er með sérstaklega styrkt stefni og byrðing fyrir siglingar í ís. Um borð eru tvær aðalvélar sem skila 18 sjómílna ganghraða, ásamt ljósavélum. Siglinga- og fjarskiptatæki voru ætíð af bestu gerð. Dráttarspil var 20 tonna, fyrir 3 km langan dráttarvír.

óðinn kemur

Óðinn tók þátt í öllum þremur þorskastríðunum á 20. öldinni. Öflugasta vopn skipsins var 57 mm fallbyssa, staðsett á palli fyrir framan brúna. Þekktasta og árangursríkasta vopnið í þorskastríðunum var þó togvíraklippurnar, sem sjá má á afturdekki skipsins.

Óðinn reyndist sérlega vel sem björgunarskip. Hann dró alls tæplega 200 skip til lands eða í landvar vegna bilana, veiðarfæra í skrúfu eða eldsvoða um borð. Einnig dró hann flutninga- og fiskiskip 14 sinnum úr strandi. Þá bjargaði skipið áhöfnum strandaðra skipa þrisvar sinnum og tvisvar bjargaði það áhöfnum sökkvandi skipa.

Óðinn sinnti almennu veiðieftirliti alla tíð og beindist það bæði að íslenskum og erlendum skipum. Fylgjast þurfti með hvar var veitt og hvernig veiðarfærin voru. Einnig var Óðinn oft kallaður til þegar ófærð var í landi og erfiðleikar við fólks- og vöruflutninga, ekki síst í afskekktustu byggðum landsins. Þyrla var oft notuð þegar mikið lá við í sjúkarflutningum.


Opnunartími


Opið í vetur:
þri.-fös. kl. 11:00-17:00
lau.-sun. kl. 13:00-17:00

Leiðsagnir um skipið ef það eru 3 gestir eða fleiri

 Sjá nánar

Mynd mánaðarins

Bakhjarlar safnsins

 

Eimskip

 

islandsbanki logo

 

Grandi

Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréenglish