Úr safnastarfinu
20. júlí 2010
Sýningaropnun
Ný ljósmyndasýning var opnuð 7. júlí síðastliðinn í Hornsílinu. Þar eru sýndar ljósmyndir úr Norðusiglingunum Bandaríkjamanna, Breta og Rússa í seinni heimsstyrjöldinni teknar af Robert Lvovich Diament. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson opnaði sýninguna og mun hún standa til 30. ágúst. Eftir opnunina stilltu frostöðumaður safnsins, Eiríkur Jörundsson, herra Ólafur R. Grímsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson stjórnarformaður safnsins sér upp fyrir myndatöku.


Fjölmennt var við opnunina

Rússneski sendiherrann hélt ræðu í tilefni opnunarinnar





