Heimsóknir

Stór hluti af fræðslustarfi safnsins er að taka á móti skólahópum sem og öðrum hópum. Að öllu jöfnu er farið með hópa í leiðsögn um Varðskipið Óðin og um grunnsýninagr safnsins. Áhersla er lögð á að sníða leiðsagnir að getu og skilningi hópsins. Athygli skal vakin á því að inni á safninu er því miður engin nestisaðstaða. Hópum er velkomið að borða nestið sitt úti á bryggjupalli og njóta útsýnisins.
Til að heimsókn á safnið heppnist sem best er vert að athuga eftirfarandi:
- Mikilvægt er að halda hópinn
- Ekki er leyfilegt að hlaupa eða vera með háváða
- Mikilvægt er að brýna fyrir börnunum að bera virðingu fyrir safngripum og forðast að snerta safngripina
Vinsamlegast hafið samband við fræðslufulltrúa í alma@sjominjasafn.is eða í síma 5179400






