Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Skólaheimsóknir

 Vikin - Sjominjasafnid

Allar bókanir fara í gegnum fræðslufulltrúa safnsins, Ölmu Sigrúnu:  alma(hjá)sjominjasafn.is eða í síma 517-9400. Vinsamlegast látið eftirfarandi upplýsingar fylgja með: Nafn skóla, nafn kennara og símanúmer skóla og kennara og sérþarfir nemenda ef einhverjar eru.

Á veturna er boðið er upp á skipulagðar leiðsagnir miðvikudaga til föstudaga handa öllum leik- og grunnskólum. Panta verður fyrirfram allar skólaheimsóknir hjá fræðslufulltrúa safnsins. Allir leik- og grunnskólar fá ókeypis á safnið. Mest er hægt að taka á móti 25 börnum í einu. Einungis er tekið á móti skólahópum fyrir hádegi, kl.10. Vinsamlegast athugið að það er ekki nestisaðstaða á safninu en það er hægt að borða nesti úti á bryggju þegar veður leyfir

Leikskólar: Klukkustundarleiðsögn þar sem börnin kynnast bryggjulífinu í Reykjavík, sjávarlífverum sem lifa við Ísland, lífi sjómanna og fá að prófa sjóstakka líkt og sjómenn klæddust áður fyrr. Lagt áherslu á árabátatímann, harðfisk og saltfiskinn. Endað á leiðsögn út í Varðskipið Óðinn þar sem helstu innviði skipsins eru skoðuð.

1.-2.bekkur: Klukkustundarleiðsögn þar sem börnin kynnast bryggjulífinu í Reykjavík, sjávarlífverum sem lifa við Ísland, lífi sjómanna og fá að prófa sjóstakka líkt og sjómenn klæddust áður fyrr. Fjallað um árabátatímann, harðfisk og saltfiskinn.  Lagt áherslu á að sýna krökkunum þróunina frá árabátum yfir í stóru skuttogarana. Endað á leiðsögn út í Varðskipið Óðinn þar sem krakkarnir læra um Þorskastríðin.

3.-7.bekkur: 1 og ½ klukkustundarheimsókn þar sem börnin byrja á ratleik um safnið. Tveir og tveir saman í hóp og þurfa leysa ýmislegar þrautir þar sem safnvörður og kennarar eru krökkunum innan handar. Endað á leiðsögn út í Varðskipið Óðinn þar sem krakkarnir læra um Þorskastríðin og starf Landhelgisgæslu Íslands.

8.-10.bekkur: 1 klukkustundarleiðsögn. Byrjað á leiðsögn um safnið þar sem áherslan er á þróun sjávarútvegs á Íslandi, líf sjómanna og þróun í skipaflota Íslendinga. Endað á leiðsögn út í Varðskipið Óðinn þar sem krakkarnir læra um Þorskastríðin og starf Landhelgisgæslu Íslands.

Einnig er tekið á móti framhaldsskólum og háskólahópum. Hafið samband við fræðslufulltrúa.

Á sumrin er boðið upp á skipulagðar leiðsagnir alla virka daga fyrir leikskóla og leikjarnámskeið. Leikskólar fá frítt á safnið en leikjanámskeið verða að vera með beiðni frá Reykjavíkurborg fyrir starfsmenn.

Leikskólar: Klukkustundarleiðsögn þar sem börnin kynnast bryggjulífinu í Reykjavík, sjávarlífverum sem lifa við Ísland, lífi sjómanna og fá að prófa sjóstakka líkt og sjómenn klæddust áður fyrr. Lagt áherslu á árabátatímann, harðfisk og saltfiskinn. Endað á leiðsögn út í Varðskipið Óðinn þar sem helstu innviði skipsins eru skoðuð.

Leikjanámskeið: Leiðbeinendur eru vinsamlegast beiðnir að athuga að einungis er hægt að taka á móti 30 börnum í einu. Heimsóknin tekur klukkustund þar sem er innifalin leiðsögn um safnið ásamt leiðsögn um Varðskipið Óðinn. Það er enginn nestisaðstaða á safninu en það er hægt að borða nesti úti á bryggju þegar veður leyfir. Einnig verður að athuga að leiðbeinendur verða að taka virkan þátt í að halda hópnum saman.

 

Vikin - Sjominjasafnid


Senda á Facebook