Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Lifandi safn við sjóinn

 

Vikin - SjominjasafnidVíkin er ungt safn í örum vexti og er sýningarými þess núna um 1200 fermetra innandyra. Þar eru fimm sýningar í jafn mörgum sölum sem m.a. rekja þróun fiskveiða og strandmenningar Íslendinga í aldanna rás. Hlutverk safnsins er að safna og miðla upplýsingum um minjar tengdar sjó og sjómennsku, einkum þeim sem gildi hafa fyrir sögu Reykjavíkur.
Nú eru tveir aðalinngangar inn í safnið, Grandagarðsmegin og síðan hafnarmegin.
Þá er varðskipið Óðinn hluti af safninu og liggur við sérstaka safnbryggju. Gestum safnsins gefst kostur á að skoða þetta merka skip. Óðinn tók þátt í öllum þorskastríðunum á síðustu öld og fór að auki í fjölmarga björgunarleiðangra.

Handan Óðins við safnbryggjuna liggur dráttar- og lóðsbáturinn Magni, fyrsta stálskipið sem smíðað var á Íslandi.

Vikin - Odinn


Senda á Facebook