Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Hollvinasamtök Óðins

Hollvinasamtök varðskipsins Óðins voru stofnuð 26. október 2006 í Víkinni – Sjóminjasafninu í Reykjavík. Björgum Óðni, sögunnar vegna voru einkunnarorð þessara nýju samtaka, sem stofnuð voru að frumkvæði Sjómannadagsráðs eftir tillögu Guðmundar Hallvarðssonar, þingmanns og formanns ráðsins. Sjá frétt safnsins frá stofnun Hollvinasamtakanna

odinn2-BW

Árið 2002 blasti við að varðskipið Óðinn yrði selt úr landi þegar þjónustu þess hjá Landhelgisgæslunni lyki. Mörgum áhugamönnum um varðveislu sögufrægra og merkra skipa fannst ekki koma til greina, að skip með slíka sögu yrði látið fara úr landi og glatast. Óðinn á sér merka og mikilvæga sögu, tók þátt í öllum þremur  þorskastríðunum og var notað sem björgunarskip í rúmlega 40 ár. Hollvinsasmtökin voru stofnuð með það markmið að leiðarljósi að fá skipið til afhendingar og eignar og gera að minjasafni um þorskastríðin og björgunarsögu LHG. Það var svo þann 30. maí 2008 að undirritað var samkomulag um borð í Óðni, sem þá þegar hafið verið færður að bryggju við Sjóminjasafnið, milli Hollvinasamtakanna og dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra um afhendingu varðskipsins Óðins til samtakanna. Í samkomulaginu er kveðið á um að Víkin –Sjóminjasafnið í Reykjavík sé ábyrgur varðveisluaðili skipsins, og hefur skipið allar götur síðan verið einn glæsilegasti sýningargripur safnsins, sem fær þúsundir gesta og skólabarna í heimsóknir ár hvert. 

Stofnfundur Hollvinasamtakanna

Stofnfundur Hollvinasamtaka Óðins

Í Hollvinasamtökunum eru um 200 meðlimir og koma þeir úr ýmsum áttum.  Margir eru fyrrverandi skipsverjar af Óðni, aðrir áhugamenn um skip og minjavörslu. Fyrsta miðvikudag  í mánuði hittast félagsmenn og fá sér kaffi og meðlæti um borð í Óðni. Þá getur orðið fjörugt í matsalnum, rifjaðar eru upp skemmtilegar sögur af sjónum og lífinu um borð. Einnig hefur verið leitað til meðlima Hollvinasamtakanna þegar sérstakar uppákomur eru á dagskránni, s.s. Hátíð Hafsins og Menningarnótt, og þá taka fyrrum skipverjar af Óðini á móti gestum og sýna þeim skipið og segja sögur.

Öllum er velkomið að skrá sig í Hollvinasamtökin, vinsamlegast hafið samband við Sigrúnu Ólafsdóttur á: sol@sjominjasafn.is

Stjórn Hollvinasamtakanna:

Guðmundur Hallvarðsson formaður

Sigrún Magnúsdóttir varaformaður

Guðjón Ármann Einarsson gjaldkeri

Guðjón Pedersen ritari

Sævar Gunnarsson meðstjórnandi


Senda á Facebook