Beint á leiðarkerfi vefsins

Víkin - Sjóminjasafn í Reykjavík

Mikilvægi sjávarútvegs í sögu þjóðar

Frá upphafi byggðar á Íslandi hafa landsmenn byggt afkomu sína að meira eða minna leyti á fiskveiðum. Byggð við Faxaflóa var mjög háð fiskveiðum og útgerð og þéttbýlismyndun í Reykjavík og Hafnarfirði á 19. öld átti nánast alfarið rætur sínar að rekja tiil sjávarútvegs.

Á 20. öld breyttust kjör Íslendinga gríðarlega til hins betra og í þeirri uppbyggingu skiptu fiskveiðar sköpum. Sjávarútvegur hefur því um langt skeið verið undirstaða velmegunar á Íslandi. Það er því skylda Íslendinga að halda vel utan um sögu og þróun sjávarútvegs og kynna komandi kynslóðum hér á landi, sem og erlendum gestum, hvernig sambúð Íslendinga var og er í dag við hafið og lífríki sjávar. Sjóminjasafninu í Reykjavík er m.a. ætlað að standa þá vakt.

Ársskýrsla 2006

Ársskýrsla 2005


Opnunartími


Opið í vetur:
þri.-fös. kl. 11:00-17:00
lau.-sun. kl. 13:00-17:00

Leiðsagnir um skipið ef það eru 3 gestir eða fleiri

 Sjá nánar

Mynd mánaðarins

Bakhjarlar safnsins

 

Eimskip

 

islandsbanki logo

 

Grandi

Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréenglish