Salarleiga
Móttökur og veislur:
Víkin-Sjóminjasafnið leigir út sali fyrir móttökur og veislur. Eingöngu er leigt út til aðila sem taka tillit til starfsemi safnsins. Miðað er við að móttöku/veislu að kvöldi til ásamt frágangi sé lokið fyrir kl. 23:00. Salirnir eru eingöngu leigðir út með veitingum og eru þær keyptar í gegnum Bryggjuna kaffihús.
1. Betri stofan um 230 fermetra salur með frábæru útsýni. Verð: Allt að 4 klst. kr. 70.000 + veitingar. Leiga kr. 10.000 pr. klst. umfram 4 klst.
2. Betri stofan + anddyri og Bryggjusalur Verð: kr. 120.000 leiga fyrir allt að 4 klst. + veitingar. Leiga kr. 20.000 pr. klst. umfram 4 tíma. Anddyri og Bryggjusalur eru eingöngu leigð út eftir kl. 17:00. Að auki bætist við kostnaður eftirlitsaðila með safni.

3. Hornsílið, ca. 80 fm. salur á annarri hæð safnsins, tilvalin til fyrirlestra, fundi eða kvikmyndasýningar. Skjávarpi, tússtafla og nettenging. Passar fyrir 60-80 manns í sæti þegar um bíóuppröðun er að ræða, færri ef sitja þarf við borð. Verð: kr. 25.000 fyrir hálfan dag (4 tíma, fólk sér sjálft um að raða borðum og stólum og ganga frá) og kr. 50.000 fyrir heilan dag, þ.e. á vinnutíma virka daga. Utan almenns opnunartíma safnsins hækkar gjaldið og er breytilegt eftir aðstæðum hverju sinni.
4. Verbúðin er ca. 100 fm. salur á fyrstu hæð safnsins, tilvalin fyrir fundi, fyrirlestra eða kvikmyndasýningar. Skjávarpi og tússtafla. Passar fyrir 60-80 manns í sæti þegar um bíóuppröðun er að ræða, færri ef sitja þarf við borð. Verð: kr. 25.000 fyrir hálfan dag (4 tíma) og kr. 50.000 fyrir heilan dag, þ.e. á vinnutíma virka daga. Utan almenns opnunartíma safnsins hækkar gjaldið og er breytilegt eftir aðstæðum hverju sinni.
5. Hjálmarsstofa fyrir minni fundi 10-12 manns, skjávarpi og nettenging. Leigt út á skrifstofutíma, kl. 9-17, virka daga. Verð: kr. 20.000 fyrir hálfan dag (4 tímar) og 40.000 fyrir allan daginn. Ef óskað er eftir stofunni utan skrifstofutíma þarf að semja um það sérstaklega.
Frekari upplýsingar má fá í síma 517-9400 eða sjominjasafn@sjominjasafn.is





