Verbúðin

Verbúðin er ca. 100 fm. salur á fyrstu hæð safnsins, tilvalin fyrir fundi, fyrirlestra eða kvikmyndasýningar. Skjávarpi og tússtafla. Passar fyrir 60-80 manns í sæti þegar um bíóuppröðun er að ræða, færri ef sitja þarf við borð. Verð: kr. 25.000 fyrir hálfan dag (4 tíma) og kr. 50.000 fyrir heilan dag, þ.e. á vinnutíma virka daga. Utan almenns opnunartíma safnsins hækkar gjaldið og er breytilegt eftir aðstæðum hverju sinni.






