
Safnbúð
Víkin-Sjóminjasafnið hefur að geyma mjög skemmtilega safnbúð. Þar er leitast við að selja vandaðar íslenskar vörur frá ýmsum hönnuðum alls staðar af landinu. Minjagripir, gjafavörur, leikföng, fræðirit, bækur fyrir börnin, hljómdiskar með þjóðlegri tónlist og að auki gott úrval að áhugaverðum DVD diskum.






