Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Saga hússins

BUR

Húsið sjálft var reist árið 1947 undir starfsemi Fiskiðjuvers ríkisins. Aðdraganda þess má rekja til ársins 1945, þegar Fiskimálanefnd ríkisins sótti um leyfi til að reisa hraðfrystihús á nýrri uppfyllingu við Grandagarð og jafnframt einskonar fisksölumiðstöð fyrir neyslufisk í bænum. Í leiðara Morgunblaðsins 5. mars 1947 segir m.a. um nýja hraðfrystihúsið: „Bygging þessa nýja Fiskiðjuvers er ekki að fullu lokið, en þegar það er tilbúið, verður það eitt fullkomnasta fiskiðjuver á Norðurlöndum. Fiskiðjuverið við Grandagarð er 18 þúsund rúmmetrar að stærð. Er það því eitt af stærstu húsum landsins. Þegar verksmiðjan fer að vinna að fullum krafti, mun hún geta fryst um 60 lestir af fiski á 15 klukkustundum. Verksmiðjan getur geymt 1500 lestir af frystum fiski, og framleitt 45 lestir af ís, en ísgeymslur munu rúma 200 lestir af fiski. Í Fiskiðjuverinu verða einnig hinar fullkomnustu vjelar til niðursuðu.”

BUR- vinnslanFyrsti nýsköpunartogarinn, Ingólfur Arnarson, kom til landsins 17. febrúar 1947 og hefur sá dagur síðan verið talinn stofndagur Bæjarútgerðar Reykjavíkur. Þegar kom fram á 6. áratuginn hófust bollaleggingar um að Bæjarútgerðin léti byggja eigið frystihús og samþykkti bæjarráð Reykjavíkur árið 1957 að byggt yrði frystihús fyrir starfsemi BÚR. Bæjarútgerð Reykjavíkur eignaðist síðan frystihús árið 1959 þegar Fiskiðjuver ríkisins fékkst keypt eftir talsverðar málalengingar. Það var orðið gamalt og ráðast þurfti í kostnaðarsamar breytingar á því og endurnýja vélar og tæki. Afkoma frystihússins var sæmileg frá stofnun og fram eftir sjöunda áratugnum. Hagnaður var þó ekki mikill og starfsemi þess byggðist mest á hráefni sem fékkst af togurum Bæjarútgerðarinnar.

BUR - frystingAllan þann tíma sem BÚR rak frystihúsið var það meðal framleiðslumestu húsa í SH (Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna) og lengst af stærsti framleiðandi karfaflaka í 7 lb. fyrir Ráðstjórnarríkin. Við stofnun Granda hf. 13. nóvember 1985 sameinuðust Ísbjörninn hf. og Bæjarútgerð Reykjavíkur, og var þá frystingu hætt í húsnæðinu að Grandagarði 8. Frá þeim tíma hefur húsnæðið að mestu staðið autt og allar tilraunir til að koma á fót rekstri í húsinu fóru forgörðum í þau tæpu 20 ár, þar til Reykjavíkurhöfn keypti stóran hluta hússins undir Sjóminjasafnið og fjárfestar syðri hlutann.

 


Senda á Facebook