Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Einstök staðsetning

Vikin - SjominjasafnidSjóminjasafnið í Reykjavík er staðsett í húsnæði gömlu Bæjarútgerðar Reykjavíkur (BÚR) við hliðina á Kaffivagninum. Staðsetningin er einstök - húsið er stór þáttur í útgerðarsögu Reykjavíkur og var meðal annars stærsti framleiðandi karfaflaka. 
Útsýnið er stórbrotið af bryggju safnsins yfir höfnina og á góðum dögum er hægt að sitja þar úti og njóta þess. Bryggjan kaffihús er hluti af safninu og býður uppá alls kyns ljúffengar veitingar. Fjölbreyttar og skemmtilegar sýningar fyrir alla fjölskylduna auk þess sem gestum er boðið uppá að skoða ævintýraheim Varðskipisins Óðins.

 

Vikin - Sjominjasafnid


Senda á Facebook