Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Salarleiga

Vikin - SjominjasafnidMóttökur og veislur:
Víkin-Sjóminjasafnið leigir út sali fyrir móttökur og veislur. Eingöngu er leigt út til aðila sem taka tillit til starfsemi safnsins. Miðað er við að móttöku/veislu að kvöldi til ásamt frágangi sé lokið fyrir kl. 23:00. Salirnir eru eingöngu leigðir út með veitingum og eru þær keyptar í gegnum Brauðbæ.

 

 

 

1. Betri stofan um 230 fermetra salur með frábæru útsýni. Verð: Allt að 4 klst. kr. 70.000 + veitingar. Leiga kr. 10.000 pr. klst. umfram 4 klst.
2. Betri stofan + anddyri og Bryggjusalur Verð: kr. 120.000 leiga fyrir allt að 4 klst. + veitingar. Leiga kr. 20.000 pr. klst. umfram 4 tíma. Anddyri og Bryggjusalur eru eingöngu leigð legið út eftir kl. 17:00. Að auki bætist við kostnaður eftirlitsaðila með safni.
3. Verbúðin tilvalin fyrir fyrirlestra, fundi eða kvikmyndasýningar. Fínn fyrir 60-80 manns þegar um bíóuppröðun er að ræða, færra ef borð þurfa að vera. Verð: kr. 20.000 fyrir hálfan dag (4 tímar og fólk sér sjálft um að stilla upp borðum og stólum og ganga frá) og kr. 40.000 fyrir heilan dag, þ.e. á vinnutíma virka daga. Utan opnunartíma safnsins kr. 30.000 + eftirlitsaðili.
4. Hjálmarsstofa fyrir minni fundi 10-12 manns, skjávarpi og nettenging. Leigt út á skrifstofutíma, kl. 9-17, virka daga. Verð: kr. 15.000 fyrir hálfan dag (4 tímar) og 30.000 fyrir allan daginn. Ef óskað er eftir stofunni utan skrifstofutíma þarf að semja um það sérstaklega.

Frekari upplýsingar má fá í síma 517-9400 eða sjominjasafn@sjominjasafn.is

Vikin - Sjominjasafnid


Senda á Facebook